Gallup mælir ímynd Landsbankans og tengsl við viðskiptavini fjórum sinnum á ári. Viðskiptavinir bankans svara m.a. spurningum um ánægju, traust, hvort bankinn starfi af heilindum og hvort viðskiptavinir séu stoltir af bankanum. Rannsóknin, sem kallast CE11, skilar af sér stuðli sem endurspeglar þetta allt á kvarðanum 1-5, og hefur þetta verið mælt frá árinu 2007. Enginn banki mældist hærri en Landsbankinn í lok árs 2016. Þá fékk bankinn einkunnina 3,6 og hefur ekki mælst svo hár frá því fyrir hrun.
Í siðasáttmála Landsbankans er kveðið á um að starfsfólk sýni fagmennsku og heiðarleika með því að leita upplýsinga og fylgja lögum, reglum, viðurkenndum starfsháttum, siðareglum og öðrum viðmiðum sem eiga við störf þess hverju sinni. Auk þess að lúta almennum lögum um neytendavernd og markaðssetningu fylgir það starfsfólk bankans, sem sinnir markaðssetningu, leiðbeinandi siðareglum Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og leiðbeinandi reglum talsmanns neytenda og umboðsmanns barna um markaðssókn til barna. Landsbankinn tekur enn fremur tillit til reglugerðar um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, nr. 995/2007, en tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja að upplýsingar um fjárfestingarsjóði séu skýrt og rétt fram settar. Engar athugasemdir eða kærur hafa borist á árinu.
Kvartanir frá utanaðkomandi aðilum
Á árinu 2016 voru skráðar 1.807 kvartanir sem dreifðust nokkuð jafnt yfir árið. Til samanburðar voru skráðar 2.530 kvartanir árið 2015. Eðli kvartana var mjög fjölbreytt á árinu en það sem stóð uppúr var virkni netbankans, vinnubrögð og símaþjónusta, breyting á VISA kortatímabili og virkni nýju debetkortanna en kvörtunum vegna þeirra fjölgaði töluvert eftir því sem leið á árið.
Markmið bankans er að leysa úr kvörtunum innan 7 daga. 15 mál voru send til Rekstraráhættu árið 2016 en það eru þau mál sem talin eru alvarleg.
Kvartanir frá eftirlitsaðilum
Ekki komu upp mál á árinu 2016 sem tengjast trúnaðarbrotum eða leka á upplýsingum um viðskiptavini Landsbankans.
Mannauðsdeild bankans ber ábyrgð á mannauðs- og fræðslumálum bankans. Helstu upplýsingar um mannauðsmál, jafnréttismál, starfskjör og hlunnindi, starfsþróun og stefnu bankans má finna á vef bankans. Upplýsingar um starfsmannafjölda eru á samstæðugrundvelli.
Í árslok störfuðu 1.067 starfsmenn í 1.012 stöðugildum í Landsbankanum, Landsbréfum og öðrum dótturfélögum. Þar af eru 52% með háskólamenntun.
Af nýráðningum voru 46% karlar og 54% konur.
Lausráðnir starfsmenn eru þeir sem eru að hefja störf hjá Landsbankanum en þeir fá fastráðningu eftir 3 til 6 mánuði. Árið 2016 hættu 5 lausráðnir starfsmenn áður en til fastráðningar kom.
Starfsmannaveltan á árinu 2016 var 10%, í samanburði við 15% árið 2015.
Starfsmenn Landsbankans njóta hlunninda samkvæmt kjarasamningi SSF og SA, hjá Félagi starfsmanna Landsbankans (FSLÍ) og Landsbankanum hf. Kjörin eru mismunandi eftir því hvort starfsmenn eru lausráðnir eða fastráðnir. Í sumum tilfellum geta lausráðnir starfsmenn notið sömu kjara og fastráðnir starfsmenn.
Allir starfsmenn, jafnt fastráðnir sem lausráðnir, njóta aðgangs að trúnaðarlækni, hádegisverði, slysatryggingu, foreldra- og fæðingarorlofi og sjúkrasjóði.
Allir fastráðnir starfsmenn eru líftryggðir, fá örorkustyrk ef svo ber undir og fá greiddan að hluta mismun á launum og greiðslum frá fæðingarorlofssjóði. Greiðslur í lögbundinn lífeyrissjóð eru 10% (starfsmaður 4% og vinnuveitandi 6%) og bankinn greiðir auk þess sem svarar 2% af heildarlaunum starfsmanns í séreignarsjóð fyrstu þrjú starfsár viðkomandi en 7% eftir það.
Auk ofangreinds njóta starfsmenn ýmissa fríðinda eins og aðgangs að orlofshúsum, íþróttastyrkja, samgöngustyrks, námsstyrkja og tómstundastyrkja. Nánari upplýsingar um þau fríðindi, sem standa starfsmönnum til boða, er að finna á vefsíðu bankans.
Konum, sem tóku fæðingarorlof, fækkaði um 3% frá árinu áður á meðan körlum fækkaði um 10%. Konur tóku jafnmargar vikur að meðaltali í fæðingarorlof árið 2016 og síðustu ár á meðan fæðingarorlof karla hefur styst ár frá ári. Starfsmenn af báðum kynjum taka frekar fæðingarorlof yfir sumarmánuðina.
Fjórir starfsmenn komu ekki aftur til vinnu eftir fæðingarorlof, að eigin frumkvæði.
Starfsmenn í fæðingarorlofi | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | Breyting frá 2015 | |
---|---|---|---|---|---|---|
Meðalfjöldi kvenna í fæðingarorlofi | 24,4 | 15,6 | 16,8 | 16,3 | -3% | |
Meðalfjöldi karla í fæðingarorlofi | 9,0 | 8,3 | 7,0 | 6,2 | -10% | |
Meðalfjöldi vikna í fæðingarorlofi - konur | 42,0 | 55,5 | 58,5 | 58,3 | 0% | |
Meðalfjöldi vikna í fæðingarorlofi - karlar | 27,3 | 20,1 | 16,8 | 16,0 | -4% |
Almennur uppsagnarfrestur starfsmanna er eftirfarandi:
Lausráðnir starfsmenn – 2 mánuðir.
Fastráðnir starfsmenn – 3 mánuðir.
Fastráðnir starfsmenn með meira en 10 ára starfsreynslu í fjármálafyrirtæki eða lífaldur a.m.k. 45 ár – 6 mánuðir.
Veikindaréttindi eru nokkuð víðtæk hjá starfsmönnum fjármálafyrirtækja. Þau eru tengd starfsaldri, miðast við 12 mánaða tímabil og eru eftirfarandi:
Lausráðnir starfsmenn eiga rétt á fullum launum í 30 daga og ½ launum í 30 daga.
Fyrir fastráðna er veikindaréttur 3 mánuðir á fullum launum og 3 mánuðir á ½ launum.
Eftir 10 ár í starfi er rétturinn 4 mánuðir á fullum launum og 4 mánuðir á ½ launum.
Eftir 15 ár í starfi er rétturinn 6 mánuðir á fullum launum og 6 mánuðir á ½ launum.
Eftir 20 ár í starfi er rétturinn 12 mánuðir á óskertum launum.
Starfstengdir sjúkdómar eru ekki skráðir sérstaklega í bankanum. Oftast er um stoðkerfisvandamál að ræða sem gætu einnig tengst öðru en vinnuumhverfi.
Meðalfjöldi veikindadaga starfsmanna var 7,7 dagar árið 2016 miðað við 7 daga árið 2015. Meðalfjöldi veikindadaga barna 2016 var 1 dagur.
Fræðslustarfið í tölum
Hjá Landsbankanum býðst starfsfólki að nýta sér fjölbreytta fræðsludagskrá. Árið 2016 var boðið upp á 200 viðburði og þátttakendur voru um 3500. Hver starfsmaður bankans sótti að meðaltali ríflega 3 viðburði í fræðsludagskránni. Stærstu málaflokkarnir eru Vörur og þjónusta, Kerfi og forrit og Stjórnun. Lögð hefur verið mikil áhersla á þjálfun stjórnenda í takt við þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir við innleiðingu stefnu. Framlínustarfsmenn hafa sótt framhaldsþjálfun í 360° ráðgjöf auk þess sem þjálfun í tengslum við sjálfsafgreiðslulausnir hefur aukist á árinu. Stór hluti þeirrar fræðslu sem fellur undir Kerfi og forrit tengist innleiðingu á nýju CRM kerfi í bankanum.
Virkni starfsfólks í símenntun árið 2016
Starfsmenn Landsbankans eru mjög duglegir að sækja símenntun en 81% starfsmanna sótti sér einhverja starfstengda símenntun árið 2016 – innan eða utan bankans.
Fjöldi fræðslustunda
Meðalfjöldi fræðslustunda á hvert stöðugildi á árinu 2016 var 12,2 klukkustundir. Fjöldi fræðslustunda inniheldur bæði atburði sem starfsmenn sækja innan bankans og þá fræðslu sem sótt er utanhúss á kostnað bankans. Meðalfjöldi fræðslustunda var nokkuð jafn fyrir svið bankans, lægstur hjá Rekstri og upplýsingatækni, eða 11,5 fræðslustundir á hvern starfsmann, og hæstur hjá Bankastjórn þar sem hver starfsmaður eyddi um 14 stundum í fræðslu á árinu.
Fræðslustarf í tölum | |
---|---|
3.500 | Þátttakendur í fræðsluviðburðum hjá Landsbankanum á árinu 2016 voru 3.500 talsins. |
200 | Boðið var upp á 200 fræðsluviðburði hjá Landsbankanum á árinu 2016. |
81% | 81% starfsmanna bankans sótti sér einhverja starfstengda símenntun árið 2016. |
12,2 | Meðalfjöldi fræðslustunda á hvert stöðugildi á árinu var 12,2 klukkustundir. |
3 | Hver starfsmaður bankans sótti að meðaltali 3 viðburði í fræðsludagskránni. |
Jafnrétti til símenntunar
Hjá Landsbankanum er lögð áhersla á að konur og karlar í hópi starfsmanna hafi sömu tækifæri til þátttöku í fræðslu. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá meðalfjölda fræðslustunda eftir starfsheitum og kyni. Lítill munur er á fjölda fræðslustunda kynjanna. Karlar hafa þó sótt fræðslu í sem nemur 1,7 klst. meira en konur.
Kynjamunur á meðalfjölda fræðslustunda eftir starfsheiti er á bilinu 0,3 – 12 klst. Mestan kynjamun má sjá í tilfellum sérfræðinga í framlínu (karlar með 12 klst. umfram konur) og þjónustustjóra (konur með 9,4 klst. umfram karla). Karlar í hópi deildarstjóra sækja meiri fræðslu en konur en því er öfugt farið í hópi forstöðumanna. Í hópi sérfræðinga í höfuðstöðvum eru karlar með umtalsvert fleiri fræðslustundir en konur, eða 8 klst.
Markviss þróun þekkingar með sérsniðinni fræðslu
Tæp 50% þeirra fræðsluviðburða sem haldnir voru 2016 teljast til sérsniðinnar fræðslu sem miðuð er við þarfir afmarkaðra hópa. Um er að ræða stjórnendaþjálfun og fræðslu í tengslum við innleiðingu CRM, þjálfun í tengslum við breytingar á útibúum og nýjar vörur, s.s. 360° ráðgjöf. Auk þess hafa verið haldin námskeið með erlendum fagaðilum fyrir sérfræðinga á tilteknum sviðum. Með því að hækka hlutfall sérsniðinnar fræðslu er verið að uppfylla fræðsluþarfir með markvissum hætti. Mikilvægt er þó að halda jafnvægi í þessu til að tryggja aðgengi allra starfsmanna að símenntun. Hér má sjá nokkur dæmi um þá sérsniðnu fræðslu sem boðið hefur verið upp á.
Framhaldsþjálfun teymisstjóra í 4DX aðferðafræðinni
Á vordögum 2016 fengu stjórnendur bankans viðbótarþjálfun í aðferðafræði 4DX sem tekin var í notkun í bankanum árið 2015. Tilgangurinn með þjálfuninni var að nýta betur þau tækifæri sem þessi aðferðafræði býður upp á og styðja þannig enn frekar við árangursmiðaða menningu í bankanum.
Vinnustofa um innleiðingu breytinga
Um 60 lykilaðilar í stefnuverkefnum sátu á vordögum vinnustofu um innleiðingu breytinga. Þar var lögð áhersla á hagnýta þekkingu á sviði breytingastjórnunar, ekki síst hvað mannlega þáttinn varðar. Unnið var með raunhæf viðfangsefni og verkefni úr bankanum. menningu í bankanum.
Áhrif og ábyrgð – Stefnumiðuð stjórnendaþjálfun
Þjálfunin samanstendur af fimm námskeiðum. Haustið 2016 luku stjórnendur tveimur þeirra, þar sem fjallað var um hlutverk stjórnandans og stjórnunarstíl og beitingu markþjálfunar í stjórnun. Alls sækja um 150 stjórnendur námskeiðin en stór hluti hópsins, eða 92 stjórnendur, sækir samhliða einstaklingsmiðaða stjórnendaráðgjöf, í alls 5 klst. Tilgangurinn með ráðgjöfinni er tvíþættur, annars vegar að festa vel í sessi þá þekkingu sem stjórnendur öðlast á námskeiðunum og hins vegar að auðvelda hverjum og einum að þróast í sínu hlutverki sem stjórnandi. Markmiðið er að laða fram kjörframmistöðu og stjórnunarhæfni hvers og eins með samtalstækni markþjálfunar, fjölbreyttum matstækjum, hagnýtri ráðgjöf og eftirfylgni.
Stjórnendur eiga kost á að sækja um námsstyrk til stjórnunarnáms á háskólastigi og fengu 15 starfsmenn slíkan styrk. 40% þeirra voru karlar en 60% konur.
Vinnustofa um sjálfbærni
20 lykilstarfsmenn í verkefnum tengdum samfélagsábyrgð Landsbankans sátu 2ja daga vinnustofu um sjálfbærni á árinu. Leiðbeinendur voru þeir Gil Friend og Michael Kleeman frá Natural Logic Inc. Markmiðið var að auka skilning þátttakenda á ávinningi samfélagsábyrgðar fyrir fyrirtæki, kynna fyrir þeim hugmynda- og aðferðafræði við framkvæmd samfélagsábyrgðar í fjármálafyrirtækjum og byggja upp hæfni þátttakenda til að móta stefnu og vinna við verkefni tengd samfélagsábyrgð.
Fræðsla fyrir framlínustarfsmenn
Í fræðslu fyrir framlínustarfsmenn hefur verið lögð sérstök áhersla á framhaldsþjálfun fyrir 360° ráðgjafa, sérsniðna fræðslu fyrir þau útibú sem eru að fara í gegnum breytingar og CRM kerfið. Skipulagt fræðslustarf í hverju útibúi fyrir sig hefur færst í aukana og víða er markvisst farið yfir nýtt efni sem tengist vörum og vinnubrögðum á fundum með starfsmönnum. Mikil áhersla er lögð á að bjóða framlínustarfsmönnum á landsbyggðinni upp á þátttöku í fræðslu í gegnum vefútsendingu.
Landsbankinn hefur um árabil boðið öllum sumarstarfsmönnum sem eru að hefja störf hjá bankanum í fyrsta sinn, að sækja fræðsludag sumarstarfsmanna í fræðslusetri bankans í Selvík við Álftavatn.
Fræðsludagur og þjálfun sumarstarfsmanna
Landsbankinn hefur um árabil boðið öllum sumarstarfsmönnum sem eru að hefja störf hjá bankanum í fyrsta sinn, að sækja fræðsludag sumarstarfsmanna í fræðslusetri bankans í Selvík við Álftavatn. Um 40 sumarstarfsmenn tóku þátt að þessu sinni en boðið var upp á fjölbreytta fræðsludagskrá þar sem blandað var saman fróðleik og skemmtun. Sumarstarfsmönnum bauðst einnig að sækja námskeið um vinnubrögð.
Vottun fjármálaráðgjafa
Landsbankinn er virkur þátttakandi í verkefninu Vottun fjármálaráðgjafa. Verkefnið er á vegum SFF, en að því koma auk fjármálafyrirtækja, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Háskólinn á Bifröst, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Markmiðið með Vottun fjármálaráðgjafa er m.a. að samræma þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem sinna fjármálaráðgjöf til einstaklinga og tryggja að fjármálaráðgjafar búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Í árslok 2016 hafa 57 starfsmenn Landsbankans hlotið vottun sem fjármálaráðgjafar.
Námsstyrkir
Starfsmönnum Landsbankans standa til boða styrkir til að sækja námskeið utan bankans. Árið 2016 nýttu 320 starfsmenn sér slíka styrki. Um 100 starfsmenn fengu styrk til að stunda nám samhliða starfi, s.s. til stúdentsprófs, háskólaprófs eða löggildingar.
Námskeið um starfslok og lífeyrismál
Hjá Landsbankanum er reglulega boðið upp á starfslokanámskeið. Námskeiðið er ætlað þeim starfsmönnum sem hyggja á starfslok á næstu tveimur árum. Markmiðið er að hvetja starfsmenn til að undirbúa sig vel fyrir mikilvæg tímamót og stuðla þannig að góðri heilsu, ánægju og vellíðan þeirra á efri árum. Árið 2016 sóttu 12 starfsmenn námskeiðið. Einnig er reglulega boðið upp á námskeið um lífeyrismál fyrir starfsmenn og hafa um 150 starfsmenn nýtt sér það sl. tvö ár. Á námskeiðinu er fjallað sérstaklega um reglur og helstu atriði í samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna.
Síðustu ár hefur frammistöðumat verið framkvæmt í stað starfsmannaviðtala. Markmiðið með þessu er að ná fram betri frammistöðu samkvæmt bæði hlutlægum og huglægum mælikvörðum. Einnig er þetta hugsað sem aukin eftirfylgni í starfsþróun, samskiptum og stjórnendaupplýsingagjöf. Frammistöðumat er framkvæmt af næsta yfirmanni hvers starfsmanns en öllum starfsmönnum Landsbankans er boðið í frammistöðusamtal. Samtals fóru 1010 starfsmenn í samtal árið 2016 sem er 92% starfsmanna.
Frammistöðumat eftir sviðum | 2015 | 2016 |
---|---|---|
Áhættustýring | 82% | 93% |
Einstaklingssvið | 83% | 93% |
Fjármál | 62% | 89% |
Fyrirtækjasvið | 68% | 95% |
Innri endurskoðun | 88% | 100% |
Markaðir | 78% | 84% |
Rekstur og upplýsingatækni | 87% | 91% |
Skrifstofa bankastjóra | 40% | 87% |
Þróun og mannauður | 77% | 95% |
Meðaltal Landsbankinn | 80% | 92% |
Tölfræði á við Landsbankann og dótturfélög. Jöfn skipting er á framkvæmdastjórn Landsbankans en við bætist einn karlkyns framkvæmdastjóri frá Landsbréfum.
Komi upp ágreiningur eða önnur atvik, sem fara þarf yfir, ber starfsmönnum að leita til næsta yfirmanns og er það hans að leysa úr málinu eða kalla til sérfræðinga Mannauðs þegar þess gerist þörf. Eigi ágreiningur rætur að rekja til samskipta starfsmanns og yfirmanns geta starfsmenn leitað beint til Mannauðs.
Ein kvörtun um einelti barst á árinu. Sálfræðingar voru fengnir til þess að meta kvörtunina og studdi niðurstaða þeirra ekki að um einelti hafi verið að ræða. Skoðunin leiddi af sér gagnlegar ábendingar um samstarf og samskipti aðila sem unnið var eftir og telst málið leyst. Einn aðili málsins ákvað að eigin frumkvæði að láta af störfum hjá bankanum.
Í bankanum starfa siðanefnd og jafnréttisnefnd og geta starfsmenn sent ábendingar beint til nefndanna ef þeir telja að aðrir starfsmenn eða bankinn sjálfur brjóti gegn ákvæðum siðasáttmála eða jafnréttisstefnu bankans. Siðanefnd og jafnréttisnefnd bárust engin mál á árinu 2016.
Regluvarsla framkvæmdi áhættumat á sviksemi og aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á helstu starfssviðum bankans á árinu 2016. Greining á sviksemisáhættu einstakra deilda var einnig framkvæmd á árinu.
Reglulega eru haldin nýliðanámskeið fyrir alla nýja starfsmenn bankans þar sem farið er yfir helstu starfsreglur bankans, þ.m.t. reglur um hagsmunaárekstra og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Reglulega eru haldin nýliðanámskeið fyrir alla nýja starfsmenn bankans þar sem farið er yfir helstu starfsreglur bankans, þ.m.t. reglur um hagsmunaárekstra og aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Bankaráð og bankastjóri fá sérstaka fræðslu við upphaf starfs sem lið í undirbúningi fyrir mat á hæfi þeirra, sem framkvæmt er af Fjármálaeftirlitinu. Þá fara framkvæmdastjórar í sambærilegt hæfismat, sem framkvæmt er af regluverði og yfirlögfræðingi bankans.
Regluvarsla heldur einnig reglulega námskeið fyrir starfseiningar bankans þar sem hætta getur verið á peningaþvætti, hagsmunaárekstrum og sviksemi. Fræðslan „varnir Landsbankans gegn misferli“ var haldin fyrir öll svið innan bankans. Fræðslan hófst árið 2015 og var kláruð fyrir höfuðstöðvar árið 2016. Á seinni hluta árs 2016 og byrjun árs 2017 var farið af stað með sams konar fræðslu í stærstu útibúum bankans. Stefnt er að því að þeirri fræðslu ljúki á fyrri hluta árs 2017.
Árlega er lagt fyrir starfsmenn bankans rafrænt próf í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Í stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra er gerð grein fyrir helstu ráðstöfunum Landsbankans gegn því að hagsmunaárekstrar skaði hagsmuni viðskiptavina. Sömuleiðis greinir stefnan mögulega hagsmunaárekstra sem upp geta komið milli viðskiptavina, milli viðskiptavina og bankans og innan bankans.
Landsbankinn hefur einnig sett ýmsar sérreglur til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, þ. á m. reglur um aðskilnað starfssviða og aðgang að húsnæði, reglur um verðbréfaviðskipti starfsmanna, auk almennra starfsreglna sem taka á atvinnuþátttöku og stjórnarsetu starfsmanna og móttöku gjafa og boðsferða.
Í bankanum er til staðar verkferli og vinnulýsing vegna misferlis starfsmanna. Regluvarsla fær tilkynningar um misferli starfsmanna og tekur á þeim málum í samvinnu við Innri endurskoðun og Lögfræðideild.
Landsbankinn hefur einnig innleitt reglur um vernd og stuðning við þá sem ljóstra upp um misferli innan bankans (e. whistle-blowing).
Á árinu 2016 var einum starfsmanni bankans sagt upp vegna vegna misferlis.
Í júlí 2015 sendi Samkeppniseftirlitið Landsbankanum bréf þar sem óskað var eftir fundi til þess að ræða samkeppnismál á fjármálamarkaði. Fundir voru haldnir í september og október 2015 þar sem m.a. var rætt um ólokna rannsókn Samkeppniseftirlitsins á viðskiptaskilmálum stóru viðskiptabankanna þriggja við veitingu íbúðalána en Samkeppniseftirlitið birti bankanum andmælaskjal sitt í því máli í mars 2013 og skilaði bankinn andsvörum sínum í júní sama ár. Rannsóknin var lögð til hliðar í kjölfarið. Á framangreindum fundum var rætt um möguleika þess að ljúka máli þessu með sátt. Í júlí 2016 sendi Samkeppniseftirlitið bankanum drög að tillögum um aðgerðir til að auka samkeppni á fjármálamarkaði. Í kjölfarið voru haldnir fundir aðila til að ræða tillögurnar. Í nóvember 2016 sendi eftirlitið bankanum drög að sátt í málinu og sendi bankinn eftirlitinu ábendingar sínar við drögin í nóvember 2016. Gert er ráð fyrir að endanleg niðurstaða fáist í byrjun árs 2017.
Landsbankinn sætti ekki viðurlögum vegna brota á lögum og reglum á árinu.
Fjármálaeftirlitið hefur mótað sér það hlutverk að veita fjármálafyrirtækjum uppbyggilegt og markvisst aðhald og styðja við mótun á skilvirkri og traustri fjármálastarfsemi þar sem áhersla er lögð á faglegt innra skipulag fjármálafyrirtækja. Fjármálaeftirlitið rækir hlutverk sitt með því að fylgjast með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög, reglugerðir, reglur og samþykktir sem um starfsemina gilda og sé að öðru leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Á árinu 2016 voru birtar tvær gagnsæistilkynningar varðandi starfsemi Landsbankans. Ekki voru gerðar athugasemdir um starfsemi Landsbankans sem hafa leitt til viðurlaga.
Þá kom út skýrsla Ríkisendurskoðunar vegna eignasölu Landsbankans árin 2010-2016 í nóvember. Skýrslan fól í sér fjórar ábendingar til bankans og unnið hefur verið að úrbótum í samræmi við þær.
Landsbankinn rekur einungis starfsemi á Íslandi og því er ekki talin veruleg hætta á að brotið sé á réttindum stafsmanna varðandi samningsrétt eða þátttöku í stéttarfélögum.
Ekki er heldur talin hætta á að innlendir birgjar Landsbankans brjóti gegn þessum ákvæðum en sérstök greining hefur ekki verið gerð.