Umræðan, ný frétta- og efnisveita Landsbankans, opnaði í nóvember 2016. Á Umræðunni birtast áhugaverðar greinar um fjölbreytt efni, bæði um það sem er efst á baugi í fjármálaheiminum en einnig málefni sem tengjast breytingum í samfélaginu með einum eða öðrum hætti. Efnið hefur skýra vísun í hlutverk bankans sem hreyfiafl í íslensku samfélagi.
Greinarnar á Umræðunni spanna vítt efnissvið og myndbönd með viðtölum við sérfræðinga fylgja mörgum greinanna. Þróun á fjármálamarkaði er ofarlega á baugi og um það vitna greinar um breytta notkun reiðufjár og breytingar á hlutverki bankaútibúa, svo dæmi séu tekin. Í öðrum greinum er fjallað um samfélagstengd málefni sem ekki tengjast starfsemi bankans með beinum hætti, t.d. framtíðargreiningu, afkomu tónlistarfólks og áramótabrennur.
Á Umræðunni hefur kastljósinu einnig verið beint að öryggismálum. Ein grein fjallaði til að mynda um svokallaðar fyrirmælafalsanir og hvernig megi forðast þær. Á undanförnum árum hefur tilraunum til fjársvika á netinu fjölgað umtalsvert og Landsbankanum er mikið í mun að vara viðskiptavini sína og aðra við hættum sem af slíkri glæpastarfsemi stafar. Fyrirhuguð er útgáfa fleiri greina um öryggismál á næstunni.
Þjóðhagsgreiningar Hagfræðideildar Landsbankans, Hagsjá og Vikubyrjun, birtast einnig á Umræðunni. Í Hagsjá eru reglulegir pistlar um stöðu efnahagsmála, ríkisfjármála, um fasteignamarkaðinn, verðbólguhorfur og margt fleira. Í Vikubyrjun birtast upplýsingar um stöðuna á mörkuðum, vikan sem leið er gerð upp og sagt er frá því sem framundan er á sviði efnahagsmála, birtingu á hagtölum, uppgjörum o.s.frv.
Á Umræðunni má einnig finna upptökur, glærur og annað efni frá ráðstefnum á vegum bankans.
Á árinu 2016 kom út nýtt og bráðskemmtilegt app Landsbankans fyrir börn. Markmiðið var að útbúa séríslenskt app fyrir börn sem væri bæði fróðlegt og skemmtilegt. Sprota-appið er sannkallaður ævintýraheimur með fjölbreyttum leikjum, sögum, tónlist og fræðslu fyrir krakka á öllum aldri. Sprota-appið er íslensk framleiðsla frá grunni. Kári Gunnarsson teiknari sá um hugmyndavinnu, hönnun og teikningar; Felix Bergsson ritaði sögu og texta og íslenska fyrirtækið Aranja sá um forritunina.
Forritun Sprota-appsins fékk viðurkenningu á Íslensku vefverðlaununum fyrir árið 2016. Auk þess var Sprota-appið tilnefnt sem besta vefappið.
Hægt er að hala appinu niður endurgjaldslaust í Google Play og App Store og það er bæði fyrir Apple og Android síma. Appið var í raun hugsað sem rafræn gjafavara til að kynna Sprota og vini hans fyrir börnum á aldrinum 2-8 ára og forráðamönnum þeirra.
Hagfræðideild Landsbankans gegnir lykilhlutverki við að móta sýn Landsbankans á þróun og horfur í efnahagslífinu, innanlands og utan. Deildin annast greiningu á hagkerfinu og gefur út þjóðhags- og verðbólguspár, auk þess að sinna atvinnuvegagreiningum og öðrum sérhæfðari verkefnum. Deildin annast einnig greiningu og verðmat á skráðum félögum á markaði. Á árinu 2016 gaf Hagfræðideild alls út 379 greiningar, þar af 213 greiningar og spár um efnahagsmál og 166 greiningar í tengslum við skráð félög á hlutabréfamarkaði.
Í kjölfar kynningar Landsbankans á hagspá Hagfræðideildar í Hörpu í nóvember sl. var Þjóðhagur, ársrit deildarinnar, gefið út í heilu lagi á Umræðunni, umræðuvef Landsbankans. Um er að ræða fjórtán ítarlegar greinar um ólíka þætti efnahagslífsins á Íslandi og í heiminum öllum. Myndbönd með viðtölum við sérfræðinga Hagfræðideildar birtust einnig á Umræðunni, sem og á Facebook-síðu bankans.
Mikið er vitnað í hagfræðinga bankans og greiningar þeirra í fjölmiðlum. Auk þess fara þeir reglulega í fjölmiðlaviðtöl í samræmi við stefnu bankans um að vera virkur þátttakandi í samfélaginu.
Útgáfur Hagfræðideildar | |
---|---|
Þjóðhagsgreiningar | |
Hagsjá | 125 |
Þjóðhagur | 2 |
Skuldabréfayfirlit | 12 |
Vikubyrjun | 50 |
Gjaldeyrismarkaður | 12 |
Mánaðaryfirlit | 12 |
213 | |
Hlutabréf | |
Afkomuspár | 38 |
Viðbrögð við afkomu | 38 |
Verðmat fyrirtækja | 11 |
Mánaðaryfirlit hlutabréfa | 11 |
Sérrit | 12 |
Kennitölur félaga | 6 |
Hluthafalisti | 50 |
166 |
Landsbankinn stendur á hverju ári fyrir fjölbreyttum ráðstefnum og fundum, auk þess sem bankinn gefur út ýmis sérrit og greiningar um efnahagsmál og atvinnulífið. Á árinu 2016 stóð bankinn fyrir fimm ráðstefnum: um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, um aukin tækifæri á erlendum mörkuðum, um stöðu mála í mannvirkjagerð á Íslandi (í samstarfi við SI), um ábyrgar fjárfestingar og í lok árs stóð bankinn fyrir árlegri ráðstefnu þar sem Hagfræðideild Landsbankans kynnti nýja hagspá til næstu þriggja ára. Á þeirri ráðstefnu var einnig fjallað um hvað staða efnahagsmála á þeim tíma gæti þýtt fyrir þróun verðbréfamarkaðarins á næstu misserum.
Yfir eitt þúsund manns sóttu þessar ráðstefnur bankans sem hafa treyst sig í sessi sem mikilvægur vettvangur margra af helstu viðfangsefnum samtímans. Undir liðnum Ráðstefnur á Umræðunni birtast upptökur, glærur og annað efni frá ráðstefnum sem bankinn heldur. Mikið er lagt upp úr því að hafa efnið á vefnum sem ítarlegast og aðgengilegast fyrir alla.
Að auki voru haldnir 14 minni fundir víða um land þar sem meðal annars var fjallað um sparnað, fjárfestingartækifæri á Íslandi, eignastýringu og erlendar fjárfestingar.